Veljum frið – veljum gleði
Ragga Gísla og Menntunarsjóður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur hleyptu árlegri fjáröflun í tilefni mæðradagsins af stokkunum nú 5.maí. Styrkþegar, vinir og velunnarar sjóðsins komu saman í Listaháskóla Íslands og fögnuðu leyniskilaboðum Röggu sem eru:
Veljum frið – veljum gleði.
Eins og síðustu 14 ár fer nú fram sala Mæðrablóms Menntunarsjóðsins, sem eins og fyrri ár er leyniskilaboðakerti. Verndarar hafa á hverju ári valið kertunum skilaboð og bætist nú Ragnheiður Gísladóttir í hóp þeirra Vigdísar Finnbogadóttur, Höllu Tómasdóttur, Nínu Daggar Filippusdóttur og Elísabetar Jökulsdóttur, svo einhverjar séu nefndar. Leyniskilaboðakertin eru hönnuð af Þórunni Árnadóttur. Kertin eru í glerskálum og þegar kveikt er á þeim og vaxið bráðnar koma skilaboðin smátt og smátt í ljós. Þannig fær
þiggjandi óvænt og falleg skilaboð frá gefandanum. Kertin eru m.a. til sölu í verslunum Epal, Eymundssonar og Blómavals nú fyrri hluta mai. Stjórn Menntunarsjóðsins verður einnig með sölubás í í Kringlunni dagana 9. og 10. mai.






