May 5, 2025
Í þrettánda sinn hleypir Menntunarsjóður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur árlegri fjáröflun sinni af stokkunum í tilefni mæðradagsins. Eins og síðustu ár fer fram sala á Mæðrablómi Menntunarsjóðsins, sem eins og fyrri ár er Leyniskilaboðakerti. Á ári hverju hafa sérstakir velunnarar lagt söfnuninni lið og má þar m.a. nefna Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrum forseta, Elizu Reid forsetafrú og Nínu Dögg Filippusdóttur leikkonu og hafa þær valið kertunum skilaboð. Í ár fagnar sjóðurinn nýjum velunnara, Höllu Tómasdóttir forseta Íslands. Af þessu tilefni bauð forseti Íslands Halla Tómasdóttir styrkþegum og velunnurum til samkomu þann 3. maí kl 15:30, að Bessastöðum. Leyniskilaboðakertin eru hönnuð af Þórunni Árnadóttur. Kertin eru í glerskálum og þegar kveikt er á þeim og vaxið bráðnar koma smátt og smátt í ljós skilaboð á botni skálarinnar og hafa tilnefndir velunnarar sjóðsins valið skilaboðin. Halla Tómasdóttir valdi textann : Vertu riddari kærleikans. Kertin verða m.a. til sölu í verslunum Epal, Eymundsson og Blómaval nú í maí. Einnig verður stjórn Menntunarsjóðsins með sölubás í Kringlunni 10 og 11 maí. Sérstakir velunnarar söfnunarátaksins hafa verið tilnefndir undanfarin ár og hafa stutt vel við fjáröflun sjóðsins; Birna Einarsdóttir Nína Dögg Filippusdóttir, Bríet, Vigdís Finnbogadóttir, Eliza Reid, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Kristín Ingólfsdóttir, Sigríður Thorlacius, Guðrún Hafsteinsdóttir Katrín Tanja Davíðsdótti, Ragnhildur Steinunn, Unnur Ösp og Elísabet.